jakabinoz

...

12.06.2007 01:02:13 / elmúndoz

Flutningur, úldið grænmeti og læti.

Ég er svo fegin að þessi dagur sé búinn :) Hann byrjaði ekki vel,ég svaf yfir mig.Mætti þar af leiðandi 15 mín. of seint í vinnunna.Þar biðu mín 3 stútfullar kerrur af úldnu grænmeti sem átti eftir að skrifa út.Mín var ekki sátt :(

En ég fékk smá hjálp í grænmetið þannig að ég gat skrifað út friði og lét svo aðra stelpu vinna skítverkin híhí...;) Ég og Brynhildur skemmtum okku vel í dag.Það var mikið hlegið,og borðað ógeðslegt maltbrauð ;)Guðbjörg missti af miklu í dag hahaha ;)

Ég var frekar löt í vinnunni en það er bara gaman þar sem Brynka var líka löt ;) En já helgin hjá mér var frekar slöpp þar sem ég stend í flutningum.Þetta verður síðasta nóttin mín hérna í Grænumýrinni.Á morgun eftir vinnu þá fer ég til ömmu gömlu með restina af dótinu mínu.

Heyrðu haldiði bara ekki að bíldruslan sé bara örugglega að gefast upp! Ég nuðaði í Auðun í dag um að skipta um bremsuklossa sem hann gerði.Nokkrum mín.eftir að hann er búinn og ég er að keyra heim þá fer helv. olíu ljósið á takk fyrir.

Þannig að mín bara drap á bílnum og labbaði heim.Kom heim og stoppaði í 10 mín. heima,fór svo og labbaði út í Nóatún til þess að vinna meira :). Ég er nokkuð búin á því eftir þennann dag, svo til þess að toppa allt saman þá er gat á leðurjakkanum mínum :( verð að láta ömmu kíkja á það.

En það verður ekki blogg frá mér í smá tíma þar sem hún Amma mín er ekki með net tengingu búhú.....

Btw þá er í lagi með bílinn eða ég ætla rétt svo að vona það,ég þarf að komast i vinnunna á morgun. Svo eru það 11 dagar í Timberlake í Köben úje úje.

Þarf bara að finna þennann blessaða passa en ég er farin að lúlla ja ég ætla að lesa smá áður ( letting go úlala)

Elmúndoz out!

P.s. Bara svona smá update á átakinu mínu þá er ég búin að missa 7 kíló takk fyrir :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 23:41:22 / elmúndoz

Djamm og aftur djamm

Önnur helgi búin já :)

Özzz það er orðið alltof langt síðan ég bloggaði síðast.Þetta gengur ekki...:D

En já helgin mín var bara nokkuð nett.Á föstudaginn þá náðu Brynhildur og Guðbjörg að plata mig á djammið.Við byrjuðum heima hjá Brynku og vorum ekki lengi að koma okkur í gírinn ;) Svo um miðnætti þá var lagt af stað með taxa niður á players.

Á móti sól voru að spila og voru þeir bara fínir :) Við vorum nett skrautlegar og lentum í alls konar hlutum.....Svo fórum við notla nokkrum sinnum út til þess að stelpunar gætu fengið sér smók, það var dáldið spes en samt smá stemming.

Það lokaði 3 á players og þá fór Guðbjörg niður í bæ,Brynka heim og ég endaði í eitthverju partyi á Álftanesinu,en ég stoppaði voða stutt og var fljót að panta mér taxa heim.Ég var komin heim um 5 leytið og var þá orðin drullu þreytt þannig að það var hoppað beint upp í rúm.

Á laugardeginum þá vaknaði ég kl.hálf eitt við það að Heiðdís var að hringja í mig.Hún dró mig í kringluna og fékk ég mér þar feitan mcdonalds :D Um kvöldið þá passaði ég Eric,Halldísi og Glódisi.Þau eru svo mikil krútt að það nær engri átt.

Það var mjög gaman hjá okkur og borðuðum við mikið nammi og Rizzo pizzu.Btw þá fékk ég að keyra mözduna og oh my god hvað það var gaman að keyra hana úff ég vildi að ég ætti hana.

Svo gisti ég hjá þeim og mætti svo í vinnunna á sunnudeginum.Var ekki voða glöð yfir því að þurfa að vinna en hei ég þarf ekki að vinna annan sunnudag á næstunni jeij.

Eftir vinnu skaust ég til Heiðdísar og fór svo til ömmu til þess að hjálpa að bera út úr bílnum því við erum að fara að flytja.Um kvöldið var ég bara róleg og leigði mér dvd og gerði ekki neitt ;)

Nenni ekki að blogga meira í bili...

Elmúndoz out!

P.s. það voru myndir teknar yfir helgina og þær koma um leið og ég finn þessa blessuðu myndavéla snúru ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 00:25:13 / elmúndoz

Erfiður dagur búhú

Jebb þá ætla ég að blogga enn og aftur :) Ég þarf núna að fara að sparka í rassinn á henni Huldu,kellan bara hætt að blogga...... ;)

þetta var erfiður dagur í dag.Ég vaknaði of seint í morgun þannig að ég var á hlaupum við að koma mér í vinnunna.Fólk var að missa sig í vinnunni í dag.

Brynhildur var að brillera ( þetta eru nógu góð vínber ).Og ég og Guðbjörg stóðum bara og horfðum á hana skammast og skammast og hlógum smá í leiðinni.Alltaf gaman að hlæja :D Annars var ég ýkt pirruð síðasta klukkutímann í vinnunni.

En ég skellti mér á Pirates Of The Caribbean í gær og fór á 11 bíó og myndin var ekki búin fyrr en hálf þrjú takk fyrir.En hún var mjög skemmtileg en ég var ekki alveg sátt við endirinn :(

 Og ég verð nú að segja að DJÖFULL ER ORLANDO BLOOM HEITUR!!Özzz ég var búin að gleyma því hvað hann er fokking flottur.Johnny depp er notla geggjað flotturm líka. ;)

Ég svindlaði feitt í gær og fór á American Style og fékk mér borgara og franskar OG kók özzz það þarf að taka hart á þessu næstu daga...

En ég nenni ekki að blogga meira í bili en þar sem ég lofaði að blogga um Guðbjörgu og Brynhildi þá segi ég bara.Stelpur þið eruð...............drumroll...............dumdumdum.....ROTTUR ;)

Elmúndoz out!


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 21:23:14 / elmúndoz

Ég er ekki alki,ég er ekki alki lalalala

Jæja þá er komin tími til þess að blogga um atburði helgarinnar :)

Á föstudaginn ákvað ég að nú skyldi sko fara að klára rommið mitt og malibu, þannig að mín fór bara og blandaði pina colada.Svo skellti ég mér í Garðabæinn að hitta Berglindi frænku, en hún var í stelpu partýi hjá Írisi.

Það var lítið drukkið þar.Svo lá leið okkar niður í bæ.Byrjuðum á því að fara á Glaumbar.Það var ekkert að gerast þar en það var samt fengið sér einn breezer þarna inni ;). Eftir Glaumbar þá fórum við á Hverfisbarinn og hittum þar Ella,Baldur,Gumma og fleiri.

Vorum þar inni í smástund en ákváðum svo öll að fara á Sólon.Þar var allt að gerast og fullt af hip hop lögum og reagge lögum í gangi, og þorði Elín að fara að dansa fyrst hún er nú einu sinni að læra þessa dansa???Já nei ekki fyrir fimm aura.

Ég skemmti mér vel þarna inni og gat blaðrað alveg helling um enska boltann við strákana.Svo lokaði staðurinn kl.5 þannig að við fórum út en þá hurfu Elli og Berglind,Baldur fór inná Prikið og ég og Gummi vorum ein eftir.

Þannig að ég Gummi ákváðum að labba heim til Berglindar en svo kom í ljós að hún var ekki heima.Svo hringdi Baldur í Gumma og við fórum að hitta hann.Löbbuðum svo upp á Týsgötu til þess að sækja dót í bílnum hans Gumma.Það var drullukalt í bænum þannig að ég rændi mér peysu í bílnum hjá Gumma.

Við hittum svo aðra stráka sem Gummi og Baldur þekktu,fórum aðeins heim til þeirra,tókum svo leigubíl til Berglindar frænku.Þegar til hennar var komið var ég orðin nokkuð þreytt og var að sofna í sófanum þannig að ég hringdi á leigubíl og fór heim.

En á leiðinni heim þá hringdi mútta í mig og spurði mig hvort að ég ætlaði ekki að fara koma heim þar sem kl. var yfir 8.Ég kom stuttu seinna heim og rotaðist þegar ég lagðist á koddann takk fyrir.

Á laugardeginum þá vaknaði ég kl.hálf tvö, ekki sú ferskasta.Hulda hringdi í mig og kjaftaði smá við mig en ákvað svo að koma í heimsókn.Eftir sturtuferð og spasl lagningu í andlitinu þá fórum við í Partý búðina og síðan í Kringluna.

Um kvöldið fór ég í bíó á Fracture ( is hot my wife ) Hún var mjög góð.Mæli alveg hiklaust með henni.Það var bara einn galli og það var gaurinn fyrir aftan okkur sem gerði ekki annað en að smjatta.Svo var ég bara góð stelpa og fór heim.

Á sunnudaginn þá fór ég að vinna, og btw þá svaf ég yfir mig og mætti seint :( Eftir vinnu fór ég heim og dó.En vaknaði svo til lífsins um kvöldmatarleytið og skellti mér þá á Fridays að borða... nammi namm....megrun...pegrun...

Um kvöldið gerðist ég geðveik og fór aftur í bíó og fór þá að sjá Zodiac.Hún var fín en heldur langdrenginn ( kannski eins og þetta blogg ) .Kom svo heim og fór að sofa.

Svona var helgin mín í hnotuskurn.En þangað til næst...

Elmúndoz out!


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 23:50:33 / elmúndoz

Í gegnum súrt og sætt...

Kl. er 23:23 þegar ég skrifa þetta með pina colada í hinni hendinni ;) og ég gæti ekki verið ánægðari :)

West Ham vann sætann sigur á Manchester United í dag.Við unnum 1-0 takk fyrir og þar með höldum við okkur í deildinni.Ég og Hulda skelltum okkur á Classic á dag til þess að horfa á leikinn.Hann var mjög spennandi og gat ég varla á tímabili horft á hann.

Carlos Tevez skoraði eina mark leiksins og var ákaft fagnað þegar hann skoraði.Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst það fúlt að tímabilið sé búið.Það þýðir að það verður enginn bolti fyrr en í ágúst.

Þetta tímabil sem var að enda byrjaði ekki vel og á tímabili hélt ég að við myndum falla en ég stóð alltaf með mínum mönnum.Í gegnum súrt og sætt stend ég með þeim.En sem betur fer náðu þeir að enda tímabilið rétt svo ágætlega.Ég get ekki beðið eftir næsta tímabili, við munum koma þúsundfalt betri til baka og vonandi verður Tevez ennþá hjá okkur :)

Jæja svo fór ég í bíó í kvöld með Anítu á It's a boy/girl thing.Hún var bara fín.Gaurinn sem leikur í henni er mega flottur ;) Annars gerði ég lítið í gær, var bara heima að sötra pina colada ( ég er með æði fyrir því ).

Var svo að vinna í gær en var bara til 3 og brunaði svo í smáralindina til að kaupa mér spasl í andlitið.Hitti svo Heiðdísi og Halldór þar.Þau voru að missa sig í innkaupum ;).

Á Föstudaginn fór ég, Stjana og systir hennar í bíó á The Reaping, en hún var ekki jafn góð og ég hafði vonað :( en alveg ágæt afþreying.

En já ég er farin að klæða mig, Einar og Hulda eru að koma að sækja mig,ætlum að fara á smá rúnt ;)

Elmúndoz out!

P.s. Sumir komu á Classic jeij......


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 22:23:35 / elmúndoz

Blogg og aftur blogg

Já svo að íslendingar komust ekki áfram í Eurovision özzz jæja það er alltaf næsta ár ;)

Ég og Hulda skelltum okkur á Classic í gær til þess að horfa á Chelsea - Man Utd. Við horfðum bara í hálftíma því að við áttum að mæta í Hip Hop kl.20:00.Þar dönsuðum við eins og vitleysingar...Mega mikið fjör,ég mæli með því að fólk fari og kíki á svona tíma. Annars eru þessir blessuðu bremsu klossar í bílnum að deyja.Þannig að ég keyri extra varlega.

Ég var ekki að meika þennann vinnudag.Það gekk allt á afturfótunum.Ég sendi t.d. pítusósur þegar ég átti að senda pitsu sósur, stimplaði vörur inn sem ég átti ekki að stimpla inn og svo til að toppa allt saman þá voru helv. býflugur að sveima þarna um.

Ekki gaman sko.Svo fór ég í mjólkina þar sem Brynhildur er veik :( ég vona að kælirinn sé nógu góður fyrir hana.Svo erum við Guðbjörg alltaf skammaðar fyrir að vera of lengi í mat...hvað er þetta við þurfum að borða varasalva súpu ;)

Úfff ég er að deyja úr spenningi.....United - West Ham á sun. ég get ekki beðið, meira að segja ætlar Hulduz að mæta jeij......( vonandi mæta aðrir líka...) Annars er ég að spá í því að fara á Nasa á lau.það er eurovision party þar en gæti lent í " Europris" hahahaha ojbara.

Svo er það The Reaping á morgun.Vona að hún verði góð,ég er búin að bíða svo lengi eftir henni.En ég er farin að gera eitthvað.....

Elmúndoz out!

P.s. Áfram West Ham ( eða eins og Hulda kallar þá Vestur skinka )


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 23:41:34 / elmúndoz

Brjáluð helgi.

Özzz það sem ég hef að segja núna.....Það gæti verið heil ritgerð......seinna.

Alla vega þá vann West Ham á laugard. 3-1 JIBBÝ ;) Ég fagnaði mjög vel þessum frábæra sigri.Ég skellti mér á fyllerí og gerði hluti sem mér er ekki trúandi til :) ( flestir vita hvað ég meina ) Ég drakk frá því kl. hálf þrjú að degi til þangað til svona um tvö leytið um nóttina.

Skellti mér svo niður í bæ á Sólon ( Europris ) og djammaði þar þangað til hálf sex.Þá varð mín ýkt dugleg og gekk heim úr bænum.Var komin heim svona um sex og fór að sofa um hálf sjö og svaf á þrjá tíma og mætti svo í vinnunna alveg handónýt....En ég vann voða stutt þennann dag, bara til eitt.

Heiðdís, Halldór og börnin komu í mat um kvöldið og misstum við okkur í átinu :) Seinna um kvöldið fór ég á Spiderman 3.Hún var bara nokkuð góð.

Úff mig verkjar í öllum líkamanum.Ég og Kristjana fórum í kick box tíma í gær og var vel tekið á því.En ég fór tíu mín fyrr því að ég átti að vinna í Nóatúni um kvöldið.Svo mætti ég hress og kát í morgun að vinna í Nóatúni usss alltaf nóatún.. ;)

Var að vinna með Guðbjörgu og Brynhildi.Þær eru alltaf jafn klikkaðar.Svo lenti Brynhildur í skemmtilegu atviki í dag hahahaha.Hún var föst inná kaffistofu og það eina sem stóð í vegi hennar til þess að komast út var HUGE randafluga.En meistari Elmúndoz kom og drap fluguna og reddaði þar með málunum.

Svo vorum ég og Guðbjörg alveg svaka duglegar að fylla á í dag , kjöftuðum ekki neitt.......Svo var mikið pælt í matnum sem við ætluðum að fá okkur.Vi'ð enduðum á því að kaupa þessar dýrindis kjúlla bringur.

mjög góðar.

Hip Hop byrjaði aftur í kvöld og var tíminn alveg frábær,dönsuðum af okkur bossana ;) svo er annar tími á morgun jeij :)

En já ég er hætt að bulla í bili.

Elmúndoz out!


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 21:49:34 / elmúndoz

Áfram West Ham

Jæja kominn tími á annað blogg :)

Ég er orðin svo spennt.Það er leikur á morgun West Ham - Bolton og við verðum að vinna þennann leik því annars erum við fallin sem er ekki gott.Svo er Hulda að vinna þannig að hún kemur ekki , Kristjana er á Siglufirði þannig að ég plataði Heiðdísi til þess að koma með mér á morgun.Þetta verður hörku fjör hjá okkur.Áfram West Ham!!

Svakalega þarf fólk sem hringir og pantar heimsendingar í Nóatún að tala mikið.Það var einn í dag sem fór að tala um laun konunar sinnar,já mig langar rosalega að heyra það.

En annars er ég mjög sátt við að vinna í Nóatúni í sumar.Ég skemmti mér svaka vel með rugludöllunum Brynhildi og Guðbjörgu.Það er aldrei lognmolla í kringum okkur,hahaha ;) Þið eruð æði stelpur ( rottur ) ;).

Ég skellti mér á Blades of Glory á mánud, og var hún fínasta skemmtun.Mæli alveg með henni.Jæja ég verð nú að minnast á þetta blessaða átak mitt :) Ég er búin að missa 3.2 kg. síðan ég byrjaði ;) jeij fyrir mér.

Þetta gengur mjög vel , ég er búin að fara mikið út að hjóla og að skokka.Svo passa ég líka upp á matarræðið,svo í næstu viku þá byrja ég í Body Sculpture og Hip Hop úff þá verður nóg að gera hjá mér.Vonandi fjúka þá kílóin ;)

Ég þurfti að hringja í Europris í dag því ég fékk ekki rétt útborgað.Þetta asna lamb borgaði mér ekki páskana og fl.özzz vantar næstum því 50.000 kr upp á djö. En ég er hætt að tjá mig í bili...

Elmúndoz out!


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 23:33:33 / elmúndoz

3-0 gerist ekki betra

Ég er svo ánægð :) Ég er búin að missa 3 kíló jess þetta fer allt að koma.En ég ætla að blogga smá um helgina.

Ég var heima á föstudaginn þar sem ég átti að mæta kl.9 í vinnunna daginn eftir.Á laugardeginum vann ég bara til hálf tvö.Ég fór beint úr vinnunni að sækja Kristjönu og brunuðum við á Classic að horfa á boltann.

Jamm West Ham var að spila við Wigan á útivelli.Og mínir menn tóku þetta ekkert smá vel:haha:.Þeir spiluðu alveg svakalega vel og við unnum 3-0 takk fyrir.Þeir sem skoruðu þessi fallegu mörk eru Luis Boa Morte , Youssi Benayoun og Marlon Harewood.Þetta var frábær leikur í alla staði og Hulda þú misstir af miklu :lol:

Um kvöldið fór ég að vinna fyrir múttu og skellti mér svo í bíó á myndina Next.Hún var svo sem alveg ágæt.En eftir bíóið var ég svo þreytt að ég fór bara heim og henti The Mummy í dvd spilarann og skemmti mér yfir henni.

Í morgun vaknaði ég um hálf tíu og var mætt í vinnunna 10.Það var lítið að gera í dag þannig að ég kjaftaði bara við Heisa og las Vikuna.Svo þegar ég var búin að vinna þá fór ég heim, horfði smá á nágranna og dreif mig svo í Bónus til þess að kaupa hráefni í kjúklingasalat.Eftir bónus ferðina þá fór ég út að skokka og var það mjög hressandi,öözzzz ég er orðin svo dugleg jeij.8)

Svo gerði ég ekki mikið merkilegra.En ég verð að minnast á það að ég er að standa mig feitast vel í þessu breyttu matarræði og að borða ekki á kvöldin þó ég segi sjálf frá.

En ég er farin að klára að horfa á The mummy og svo verð ég að fara að sofa bráðlega því ég þarf að vakna snemma í þessa blessuðu vinnu en ég get huggað mig við það að það er frí á þriðjudaginn.

 

Elmúndoz out!

Ójá bara svona til að slúðra aðeins þá mættu sumir ekki á Classic á gær en það gæti hugsanlega verið kominn annar í staðinn............


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 19:14:31 / elmúndoz

Átak..

Já haldiði bara ekki að ég sé byrjuð í átaki! Já það órtúlega hefur gerst.Þannig er nú mál með vexti að ég steig á vigtina í gær og fékk nett hjartastopp.Svo að ég og Heiðdís gerðim smá veðmál þar sem hún er líka í átaki.

Málið er að missa 10 kg. á eitthverjum tíma og sú sem verður á undan fær 10.000 kr. þannig að sú sem tapar pungar notla út peningnum.Vona að ég hafi útskýrt þetta nógu vel.

Svo að ég ætla ekki að tapa þessum peningi, svo að núna er það bara hörku átak.Ég er búin að skrá mig í Body Sculpture sem er eitthvað voða sniðug.

Svo skráðum við Hulda okkur notla í Hip Hop dans og það byrjar 8 maí jeij.Og núna ætla ég að æfa mig meira heima í þessum dansi.( crib - walk og læti ) Annars skellti ég mér í bíó í gær á The Breach með honum Ryan Philippe og hún var góð ,samt gerðist ekki mikið í henni.

Ég fór líka að vinna í gær um kvöldið , özzz ég er svo dugleg:Ég er búin að vera í Nóatúni síðustu viku og þeir buðu mér vinnu og hækkun þannig að ég sló til og ætla að vinna þar í sumar þangað til að ég fer í skóla.Svo verð ég bara að vinna annann hvern laugardag sweet.

Jábba núna er það að duga eða drepast.Jess ég er að tala um West Ham.Þeir eiga að spila við Wigan um helgina og við verðum að vinna.

Og eins og alltaf er mæting á Classic í ármúla og vonandi mæta sumir.....En alla vega þá er ég farin að vinna í Nóatúni,ég verð nú að fá smá pening.

Elmúndoz out!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 17:43:12 / elmúndoz

If you like pina colada

I'm forever blowing bubbles pretty bubbles in the air they fly so high they reach the sky..........

Já haldiði bara ekki að West Ham hafi unnið í gær!! Ég og Hulda skelltum okkur á Classic í gær og horfðum á leikinn.Hann var mjög spennandi og dáldiðö erfitt af horfa á leikinn á köflum útaf æsingi.

Eftir leikinn þurfti ég að fara til ömmu að sækja meðöl fyrir múttu,svo þegar ég var búin að því þá dreif ég mig heim því ég þurfti svo að sækja Anítu litlu sys í sund btw þá átti hún afmæli í gær.

 Um kvöldið langaði mig svo til þess að fagna sigri okkar þannig að þegar ég var búin að vinna í Nóatúni þá dreif ég mig heim að skoða vínskápinn hennar múttu og viti menn hún átti romm og malibu.Ég var ekki lengi að gúgla upp uppskrift fyrir pina colada og fór svo út í búð að kaupa ananas safa.Ég verð að segja að pina coladan minn var geggjaður!! Mjög góður takk fyrir.

Svo kom Hulda að sækja okkur og fórum við smá á rúntinn.Skelltum okkur svo í smá party en nenntum ekki að vera þar lengi.Svo drifum við okkur bara heim þar em ég þurfti að vakna kl.9.Mætti svo í vinnunna í morgun ,ekki sú ferskasta ;) En var bara að vinna til tvö..sweet.

Núna er ég að bíða eftir Huldu en hún er að koma að sækja mig og erum við að fara að versla og ætlum að grilla í þessu góðviðri en alla vega þangað til næst...

Elmúndoz out!

P.s. humm Hulda og Elín báðar heitar fyrir öðrum gaur.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 21:38:57 / elmúndoz

Blogg og aftur blogg

Jebb þá er það einn eitt bloggið frá mér...8)

 

Ég var vakin í morgun kl.10 af símanum mínum.Nóatún var að hringja til þess að fá mig til að vinna.Þannig að ég rauk á fætur og dreif mig í vinnunna.Svo á ég að mæta á morgun og á föstudag.Özzzz ég fæ bara ekki að vera atvinnulaus í smá tíma.;)

En ég var bara að vinna til 1 þannig að þetta var mjög stuttur tími sem fór í að vinna.Eftir vinnu fór ég upp í FB til þess að sækja um skólavist jeij :haha: loksins.Það er bara vonandi að ég fái inn.Svo til þessað fagna því ég´hefði loskins sótt um þá skellti ég mér á Rizzo með Kristjönu og hámaði í mig pizzu.

Ég fór líka í 2001 og keypti Bobby :D Hún verður örugglega góð ( vona það hún kostaði 2790 :evil: ) Alla vega margir góðir leikarar í henni.

Svo fór ég nú bara heim og horfði á Melrose Place,núna fer síðasta serían að klárast..:cry: Svo fór ég að vinna fyrir múttu í kvöld.

En ég er farin að glápa á Bobby.

 

Elmúndoz out!


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 23:31:25 / elmúndoz

Atvinnulaus

Jæja núna er ég hætt í Europris :haha: Tími til kominn.Ég verð samt að viðurkenna að það er dáldið skrýtið að vera hætt og þurfa ekki að mæta aftur.En ég venst því.:) Núna er það bara að finna sér aðra vinnu.

Ég og Hulda skelltum okkur á Classic á laugard. og sáum west ham tapa fyrir sheffield.Svo ekki nóg með það þá var kall um 50 sem lét okkur ekki í friði.:evil:Við vorum komnar með nett ógeð á honum.

 

Svo um kvöldið þá fórum við á Perfect Stranger í bíó og var hún bara fín , endirinn kom smá á óvart.Reyndar fór ég líka í bíó í gær á Sunshine og hún var fín.Ég vann alla helgina og var ekki að nenna því svo var afmæli í gær hjá Heiðdísi.Hún Glódís skvísa er 2ja.:lol:

Á morgun ætla ég að fara upp í FB og sækja um ,Hulda I'm coming....;)

En annars þá er ég farin að glápa á tívíið.

Elmúndoz out!

 

P.s. þá koma bráðlega myndir af öskudeiginum inná síðuna.

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 22:24:20 / elmúndoz

Classic moment..;)

Jebb ég er að blogga ótrúlegt en satt :lol:

Jæja páskanir voru mjög fínir hjá mér,borðaði mjög mikið og var í letikasti.Ég skellti mér reyndar á Players á föstudaginn langa á papa ball og skemmti ég mér mjög vel.Svo fórum við Hulda á Classic á lau. til þess að horfa á Arsenal - West Ham.Við vorum mættar 3 en leikurinn byrjaði víst 2 þannig að við misstum af fyrri hálfleik en ég verð að monta mig.WEST HAM VANN!!Djöfull er gaman að segja þetta.

En ég sá að Hulda gleymdi að blogga um eftirminnilegt atvik sem gerðist á Classic þegar West Hamm vann Middlesbrough.Sko þannig er nú mál með vexti að moi varð dálítið æst yfir leiknum btw þá fór ég og fékk vatn með sítrónu í fyrir Huldu.Svo þegar ég var dáldið æst þá lamdi ég aðeins í borðið:^) þannig að glasið hennar Huldu helltist yfir hana.8|

 

Svo vildi það svo til að það leit út eins og Hulda hefði pissað á sig...:haha:
Svo kemur barþjónn til þess að þurka upp bleytuna og segir svo við Huldu "þú ferð  kannski á klósettið næst" Þannig að við drifum okkur klóið að þurrka hana Huldu.En við gátum varla þurrkað hana því við hlógum svo mikið....:D:D

Ég lofa að lemja aldrei í borðið aftur :P.En hvað um það.Ég á 5 daga eftir í Europris og svo er ég hætt og ég hlakka svo til að ég get ekki beðið.8)

Svo erum við Hulda að rústa hip hop tímunum okkar og erum að tækla c-walk hell jáhts.En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

 

Elmúndoz out!


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 18:06:58 / elmúndoz

Europris - Uppsögn - Tattú - Lois & Clark.

Jæja þá er helgin búin :| og önnur vinnuvika hafin.

Ég skellti mér að sjá Chaos á föstudaginn.Hún var bara nokkuð góð og ef þið viljið slefa yfir flottum gaurum þá get ég hiklaust mælt með henni.Á laugardaginn fór ég á reunion hjá Rimaskóla og var það mjög gaman.Það var algjör snilld að hitta gamla liðið aftur.Það er ótrúlegt hvað sumir breytast mikið og aðrir ekki.:D

 

Á sunnudaginn mætti ég drullu þreytt í vinnunna.Ég var ekki að nenna að vinna í gær,en maður þarf víst að vinna til þess að fá pening.Svo í gærkvöldi þá fór ég og skilaði Hondunni til Heiðdísar og Hulduz var svo frábær að sækja mig og skultla mér heim.:haha:

Svo ætlar að Hulda að fá sér tattú á föstudaginn.Ég er að reyna að troða mér með til þess að taka myndir en Huldu líst ekkert á það hummm....það endar bara með því að ég mæti á staðinn óvænt :lol: 

Dadaradadara.......Ég er búin að ........drumroll.......segja upp í Europris.Jeij :D Það var líka löngu kominn tími til.Svo er ég að fara í atvinnu viðtal á morgun hjá Hárgreiðslustofan mín.Ég get ekki beðið eftir því að hætta hjá Europris.

 

Ég er orðin meira obsessed á Lois & Clark ( ef það er hægt ) Ég get ekki slitið mig frá þessu.Özzzz 8)

Svo eru páskanir að koma þá fer mín í frí frá Europris jess, og mun ég borða unaðslega gott Rís páskaegg frá Freyju. En það er ekki meira frá mér í bili.

 

Elmúndoz out!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
•••myndir•••